Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mið 16. maí 2018 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Gunnar Magnús: Stefnum á að vinna deildina
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkur, er ánægður með stigin þrjú sem liðið krækti í á heimavelli gegn Fjölni í Inkasso-deild kvenna fyrr í kvöld.

Aníta Lind Daníelsdóttir kom Keflavík yfir snemma leiks og tvöfaldaði Mairead Clare Fulton forystuna undir lokin. Mist Þormoðsdóttir Grönvold minnkaði muninn fyrir gestina skömmu síðar og var því spenna í uppbótartímanum.

„Þetta var erfiður leikur, þetta var hörkulið sem við fengum á móti okkur hér í dag. Það var léttir að ná inn öðru markinu en svo skora þær stuttu eftir það og það var stress í lokin, ég viðurkenni það," sagði Gunnar Magnús.

Keflvíkingar voru í basli með góða pressu gestanna í fyrri hálfleik og taldi Gunnar sína leikmenn leysa vel úr pressunni þegar tók að líða á leikinn.

„Við náðum að leysa pressuna seinni hlutann af fyrri hálfleiknum og töluðum um það í hálfleik. Það kom svosem ekki mikil hætta þegar við fengum skyndisóknir í bakið á okkur en þær gerðu þetta mjög vel og lokuðu vel á okkur."

Keflavík er með sex stig eftir tvær umferðir og stefnir á að komast upp í Pepsi-deildina.

„Við förum ekkert leynt með að við stefnum á að vera á toppi deildarinnar í lok leiktíðar. Það er bara eðlileg þróun hjá okkur að stefna á að vinna þessa deild."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner