Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 18. maí 2018 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rafal skrifar undir hjá Fram - Hefur æft með Liverpool
Rafal Stefán Daníelsson.
Rafal Stefán Daníelsson.
Mynd: Facebook
Rafal Stefán Daníelsson, markvörður á 17. aldursári, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Fram.

Rafal hefur æft og spilað með Fram síðan haustið 2013. Rafal hefur æft með meistaraflokki Fram í vetur. Hann hefur spilað nokkra æfingaleiki, verið varamaður í bikarleikjum liðsins og þeim tveimur deildarleikjum sem búnir eru.

Rafal þykir mjög efnilegur en hann hefur vakið athygli hjá stórum félögum í Englandi.

Rafal hefur æft með Liverpool og Everton og þá hefur Manchester United einnig sýnt honum áhuga.

Þessi leikmaður á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.
Athugasemdir
banner
banner
banner