FH sigraði KA í Kaplakrika í kvöld 3-1 í 4.umferð Pepsí-deildar karla. Brandur Olsen skoraði annað mark FH-inga í leiknum. Brandur var ánægður með leik liðsins í dag.
Lestu um leikinn: FH 3 - 1 KA
„Fyrri hálfleikur var svo lítið út um allt, mikið af boltum fram og tilbaka svo við ákváðum að spila meira með jörðinni í seinni hálfleik og áttum hann algjörlega."
Brandi líkar lífið vel á Íslandi og segist vanur veðrinu hér, enda frá Færeyjum sjálfur.
„Ég er vanur þessu veðri, ég er frá Færeyjum. Strákarnir hafa tekið mjög vel á móti mér og mér líður mjög vel á Íslandi."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir