Hákon Ingi Jónsson kom inn á sem varamaður og gerði afar mikilvægt mark fyrir Fylki í sigrinum á ÍBV í kvöld. Hákon kom Fylki í 2-0 áður en Vestmannaeyingar minnkuðu muninn; hann skoraði markið sem tryggði sigurinn.
Hákon mætti í viðtal hjá Fótbolta.net eftir leikinn, en þetta er annar leikurinn í röð sem hann skorar í.
„Þetta var sterkur sigur, gott að vinna þennan leik. Við hefðum átt að vinna stærra," sagði Hákon Ingi.

Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 1 ÍBV
„Þetta var þvílíkt opið í byrjun en við duttum of mikið niður í seinni hálfleik."
„Ég var mjög sáttur að koma inn á og að skora, það er alltaf gaman að skora. Ég vil alltaf að byrja, en ég reyni bara að gera eins vel og ég get þegar ég kem inn á."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir