Ýmis félög hafa verið orðuð við Jack Grealish, 22 ára sóknartengilið Aston Villa, en Sky Sports greinir frá því að Tottenham sé búið að bjóða í hann.
Sky segir Tottenham hafa boðið 15 milljónir punda en litlar líkur eru á að Villa samþykki tilboðið.
Sky segir Tottenham hafa boðið 15 milljónir punda en litlar líkur eru á að Villa samþykki tilboðið.
Talið er að félagið vilji minnst 30 milljónir fyrir Grealish, en gæti verið neytt til að selja hann á minna vegna bágrar fjárhagsstöðu.
Villa þarf að skera niður eftir tap gegn Fulham í úrslitaleik um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir