banner
   fim 14. júní 2018 19:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Martraðarbyrjun Keflavíkur - 2-0 undir eftir fimm mínútur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflvíkingar eru þessa stundina að spila við KR á heimavelli og er staðan 2-0 fyrir KR þegar þessi frétt er skrifuð.

Rétt rúmar 20 mínútur eru búnar af leiknum en það tók KR-inga hins vegar ekki 20 mínútur að skora fyrstu tvö mörk leiksins, það tók þá aðeins um fimm mínútur.

Björgvin Stefánsson skoraði fyrsta mark leiksins eftir nokkrar sekúndur. Mark Björgvin kom eftir undirbúning Andre Bjerregaard en Daninn tvöfaldaði forystuna á fimmtu mínútu.

Þvílík martraðarbyrjun hjá Keflvíkingum sem hafa ekki enn unnið leik í Pepsi-deildinni í sumar. Eins og staðan er núna eru KR-ingar að stefna í átt að sínum þriðja sigri.

Þrír leikir hófust í Pepsi-deild karla klukkan 19:15.

Beinar textalýsingar:
19:15 FH 2 - 0 Víkingur R.
19:15 Keflavík 0 - 2 KR
19:15 Fjölnir 0 - 0 Grindavík
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner