Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
   fim 14. júní 2018 20:27
Egill Sigfússon
Gaui Bald: Stefni á stoðsendingarkónginn!
Gaui var gífurlega öflugur í kvöld
Gaui var gífurlega öflugur í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Stjarnan sótti þrjá mikilvæga punkta norður á Akureyri í dag þegar þeir lögðu KA 2-1 í hörku leik. Guðjón Baldvinsson leikmaður Stjörnunnar var gífurlega sáttur með þrjú stig í leik þar sem þeir voru ekki betri aðilinn.

Lestu um leikinn: KA 1 -  2 Stjarnan

„Þetta voru erfiðar aðstæður, þetta var gífurlega sterkur sigur fyrir okkur þar sem við sýndum að við getum verið lakari en samt kreist fram sigur."

Guðjón lagði upp fyrra markið og fékk svo vítið sem tryggði sigurinn, hann kveðst vera farinn að stefna að stoðsendingakóngnum þar sem Hilmar Árni er búinn að stinga af í markaskorun.

„Ég held ég sé bara farinn að stefna á stoðsendingakónginn frekar en markakónginn, ég held að það sé búið í ár þar sem Hilmar Árni er búinn að taka það."

Guðjón fékk víti sem tryggði sigurinn, hann sagði að þetta hefði verið hárréttur dómur.

„Klárlega réttur dómur, ég tek boltann með hægri og hann fer í vinstri fótinn og festir mig og fellir mig, pjúra víti."
Athugasemdir
banner
banner