„Þetta var stöðubarátta allan leikinn og bæði lið vildu ekki fá á sig mark og það þurfti eitthvað sérstakt til að klára hann og sem betur fer gerði Sam Hewson það," sagði Óli Stefán Flóventsson eftir sigur sinna manna í Grafarvoginum í kvöld.
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 1 Grindavík
Þessi leikur var frekar tíðindalítill og bæði lið vörðust vel. Eina mark leiksins var skorað af Sam Hewson og var af dýrari gerðinni.
„Við héldum stöðum vel og vorum agaðir í varnarskyldu og þegar þú nærð því þá þarf bara eitt svona móment til að ná í 3 stig."
„Ég er mjög ánægður með þessi 17 stig og við getum tekið þessa pásu ég gef þeim 5 daga frí og svo tökum við 10 daga pre-season til að endurstilla hlutina." Sagði Óli Stefán kátur að lokum en Grindvikingar hafa byrjað mótið í ár af miklum krafti.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir