„Það er vont að fá mark á sig þegar það eru fáar mínútur eftir svo þetta er svekkjandi," sagði Ólafur Páll Snorrason, þjálfari Fjölnis, eftir 1-0 tap gegn Grindavík í kvöld
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 1 Grindavík
Fjölnismenn fengu gott færi rétt áður en Grindavík skorar þegar það skapaðist mikið klafs í teignum.
„Það var mikill darraðadans þarna en við fengum önnur færi sem ég hefði viljað nýta betur og við hefðum getað verið komnir í 1-0 þegar þeir skora þannig þetta er svekkjandi."
Ægir Jarl byrjaði leikinn í kvöld og átti finan leik en hann hefur verið að koma sér í gang eftir meiðsli.
„Hann skilaði tæpum 90 mínútum sem er mjög jákvætt og hann kemur bara mjög sterkur inn og bætir sig í pásunni."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.
Athugasemdir