„Spilamennskan var bara góð, spiluðum sterkan varnarleik og héldum boltanum mun betur en við höfum gert. Þvílíkt mikilvægur sigur fyrir okkur og góð þrjú stig," sagði Hákon Atli Hallfreðsson aðstoðarþjálfari FH eftir 1-0 sigur gegn Grindavík í hörkuleik á Kaplakrikavelli.
Lestu um leikinn: FH 1 - 0 Grindavík
„Það leið frekar hægt ef ég á að segja eins og er en það var léttir þegar hún flautaði af," sagði Hákon spurður út í uppbótartímann sem var 13 mínútur vegna meiðsla Marjani í seinni hálfleik.
Næsti leikur FH er gegn HK/Víking í sannkölluðum fallbaráttuslag. Þetta hafði Hákon að segja um þann leik. "Við förum í næsta leik til að vinna, það verður gríðarlega erfiður leikur. HK/Víkingur er með hörku lið þannig við verðum að mæta klárar"
Hákon endaði viðtalið svo á gamalli og góðri klisju. „Við tökum bara einn leik í einu og svo sjáum við hvað setur."
Athugasemdir