„Þetta var fínn leikur hjá okkur. Mikil vinna og mikil hlaup eins og við áttum von á," sagði Ólafur Jóhannesson þjálfari Vals eftir 1-0 sigur liðsins á Rosenborg í fyrri leik liðanna í forkeppni Meistaradeildarinnar á Origo vellinum í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 1 - 0 Rosenborg
„Við vorum búnir að sjá fullt af leikjum hjá þeim og við vissum þeirra styrkleika og veikleika. Þetta var eins og við áttum von á þeim," sagði Óli sem segir að þeir hafi alltaf haft trú á því að geta náð úrslitum gegn Rosenborg.
„Það er eitt af því sem menn verða að hafa í þessum Evrópuleikjum og jafnvel á móti stærri liðum. Þú verður að hafa trú á því að hlutirnir gangi upp og við höfðum það allan tímann. Leikurinn þróaðist ekkert ósvipað því sem við áttum von á."
„Markmið okkar fyrir leikinn var að eiga raunhæfa möguleika áður en við færum til Noregs og númer 1, 2 og 3 var að fá ekki á sig mark og það gekk frábærlega eftir. En seinni leikurinn er annar leikur við aðrar aðstæður og blablabla."
Ólafur metur möguleikana í einvíginu ágæta.
„Við erum óhræddir við að segja það að við erum fínt fótboltalið og þorum að mæta þessum liðum. Við eigum fína möguleika, við erum 1-0 yfir allavegana," sagði Óli sem segist ekki hræðast það að mæta á Lerkendal heimavöll Rosenborg í næstu viku.
„Þetta er spurning um okkur sjálfa, hvernig við undirbúum okkur og hvernig við komum inn í leikinn. Ég held að það sé bara spurning um það. Það er ekkert utanaðkomandi sem á að hafa áhrif."
Athugasemdir