Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fim 12. júlí 2018 19:16
Kristófer Jónsson
Byrjunarlið Stjörnunnar og Nömme Kalju: Þorsteinn Már kemur inn
Þorsteinn Már byrjar hjá Stjörnunni
Þorsteinn Már byrjar hjá Stjörnunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hilmar Árni er markahæstur í Stjörnunni
Hilmar Árni er markahæstur í Stjörnunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur Stjörnunnar og Nömme Kalju frá Eistlandi í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar hefst núna klukkan 20:00 á Samsung vellinum í Garðabæ.

Nömme Kalju er á toppi eistnesku úrvalsdeildarinnar eftir átján umferðir með 44 stig. Markatala liðsins er frábær en þeir hafa skorað 68 mörk og fengið á sig 21. Stjarnan trónir á toppi Pepsi-deildarinnar með 25 stig. Byrjunarliðin eru komin hér inn.

Heimamenn í Stjörnunni gera eina breytingu á liði sínu frá sigrinum gegn Keflavík í síðustu umferð Pepsi deildarinnar. Þorsteinn Már Ragnarsson kemur inní liðið í stað Ævars Inga.

Hjá Nömme Kalju byrjar Ellinton Antonio Costa Morais, betur þekktur undir nafninu Liliu, en hann er markahæsti maður liðsins. Hann hefur skorað 22 mörk í 18 leikjum í eistnesku deildinni. Byrjunarliðin má sjá hér að neðan.

Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
7. Guðjón Baldvinsson
8. Baldur Sigurðsson (f)
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
15. Þórarinn Ingi Valdimarsson
22. Guðmundur Steinn Hafsteinsson
29. Alex Þór Hauksson

Byrjunarlið Nömme Kalju:
1. Vitali Teles (m)
5. Maximiliano Ugge
7. Reginald Mbu-Alidor
11. Ellinton Antonio Costa Morais
15. Igor Subbotin
20. Aleksandr Volkov
22. Trevor Elhi
23. Marko Brtan
26. Andriy Markovych
33. Rimo Hunt
44. William Gustavo Constancio
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner