Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fim 12. júlí 2018 21:12
Hjalti Jóhannsson
Kristján Guðmunds: Verðum að nýta færin okkar í svona leik
Kristján Guðmundsson
Kristján Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV tók á móti Sarpsborg í kvöld og töpuðu 0-4. Kristján Guðmundsson þjálfari eyjamanna var að vonum svekktur með úrslit leiksins.

„Svekkelsi að henda þessu svona frá okkur eins og kjánar í lokin, fá á okkur þriðja og fjórða markið."

„Ef við horfum bara á leikinn yfir heild og kannski fyrri hálfleikinn þá vorum við bara fínir. Sköpuðum okkur mjög góð færi, allavega tvö mjög góð og eitt hálffæri. Það kennir okkur bara að við verðum að nýta færin okkar í svona leik."

Yvan Erichot fór meiddur af velli eftir höfuðhögg á þriðju mínútu leiksins. Kristján segir að það hafi verið blóðtaka fyrir eyjamenn.

„Já, það er það. Hann er mjög mikilvægur í fjögurra manna vörninni hjá okkur. Hann er einn okkar besti varnarmaður, það var mikið áfall en við unnum okkur vel úr því. Það sást ekki mikið á leiknum hjá okkur að Siggi, 18 ára drengur kom inná og spilaði þennan leik."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner