Ægir 0-2 Vængir Júpíters
0-1 Jónas Breki Svavarsson
0-2 Eyþór Örn Þorvaldsson
0-1 Jónas Breki Svavarsson
0-2 Eyþór Örn Þorvaldsson
Einn leikur var á dagskrá í 3. deild karla í dag þar sem Ægir tók á móti Vængjum Júpíters.
Vængir Júpters hafa verið á miklu flugi að undanförnu á meðan Ægismenn hafa verið í tómu basli og tapað síðustu fjórum leikjum sínum fyrir þennan leik.
Vængir Júpíters voru sterkari aðilinn í leiknum og fór með sigur af hólmi eftir mörk frá Jónasi Breka Svavarssyni og Eyþóri Erni Þorvaldssyni.
Vængir Júpíters eru nú komnir með 16. stig en Ægir er hinsvegar í vondum málum í næst síðasta sæti deildarinnar, þremur stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir