Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fim 12. júlí 2018 21:55
Ísak Máni Wíum
Kristján Ómar: Þetta var sú leikmynd sem við vorum að vonast eftir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þetta var kannski sú leikmynd sem við vorum að vonast eftir í 55 mínútur."

Sagði Kristján Ómar Björnsson þjálfari Hauka eftir 0-3 tap sinna manna gegn HK í kvöld.

Lestu um leikinn: HK 3 -  0 Haukar

Jújú þeir skora eitt gott mark í fyrri hálfleik en fá að öðru leiti ekkert mikið af opnum færum. Þetta var alveg í ágætis jafnvægi þó við værum 1-0 undir. Síðan gerum við ágætis áras sem gekk ágætlega eftir en síðan skora þeir annað markið og þá riðlaðist skipulagið of mikið."

Haukar sköpuðu nánast engin færi í leiknum en á sama tíma var vörnin að leka.

HK er lið á mikilli siglingu og þeim líður mjög vel hérna heima og við bárum ákveðna virðingu fyrir þeim sem þeir áttu skilið. Við vörðumst neðar á vellinum og vorum i rauninni að leita að því að skapa öðruvísi færi heldur en í hinum leikjunum okkar sem hafa verið mjög opnir."

Félagskiptaglugginn opnar 15. júlí og Kristján á ekki von á mikilli breytingu á hópnum.

Það á eftir að koma í ljós, ég reikna ekkert með mikilli breytingu. Við erum að missa nokkra í skóla en við erum með ágætis menn til að bakka þá upp svo ég hef ekkert of miklar áhyggjur."

Sagði Kristján en nánar er rætt við hann í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner