Karim Benzema var ekki hluti af landsliðshópi Frakklands í Rússlandi en hann óskaði hinsvegar landsliðinu til hamingju með árangurinn eftir úrslitaleikinn í gær.
'Les Bleus' eins og landsliðið er gjarnan kallað vann sinn annan heimsmeistaratitil í sögunni. Landsliðið var hinsvegar án Benzema sem hefur ekki spilað fyrir landsliðið síðan 2015 eftir að hafa verið grunaður um að reyna að múta félaga sínum í landsliðinu, Mathieu Valbuena.
En þrátt fyrir allt er Benzema himinlifandi með árangur liðsfélaga sinna og birti skilaboð á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hann óskaði gömlu liðsfélögum sínum til hamingju með árangurinn.
Athugasemdir