Hamrarnir 2 - 1 Haukar
1-0 Emilía Eir Pálsdóttir ('21)
2-0 Andrea Dögg Kjartansdóttir ('56)
2-1 Hildigunnur Ólafsdóttir ('58)
1-0 Emilía Eir Pálsdóttir ('21)
2-0 Andrea Dögg Kjartansdóttir ('56)
2-1 Hildigunnur Ólafsdóttir ('58)
Hamrarnir fengu Hauka í heimsókn í Bogann í Inkasso-deild kvenna í dag.
Emilía Eir Pálsdóttir gerði fyrsta mark leiksins fyrir heimamenn í fyrri hálfleik og tvöfaldaði Andrea Dögg Kjartansdóttir forystuna snemma í síðari hálfleik.
Það tók Hildigunni Ólafsdóttur aðeins tvær mínútur að minnka muninn fyrir Hafnfirðinga en jöfnunarmark fékk ekki að líta dagsins ljós.
Þetta er annar sigur Hamranna í deildinni og er liðið með átta stig eftir níu umferðir, fimm stigum eftir Haukastúlkum sem eru búnar að tapa þremur í röð.
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir