Fjölnir fór á Kópavogsvöll í kvöld og tapaði 2-1 gegn Breiðablik í 12.umferð Pepsí-deildar karla. Ólafur Páll Snorrason þjálfari Fjölnis var hundsvekktur með að tapa leik sem hann fannst þeir vera með stjórn á.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 1 Fjölnir
„Af hverju töpum við þessum leik? Þeir skoruðu tvö mörk og við bara eitt. Við spiluðum mjög vel, sérstaklega í seinni hálfleiknum og ég er mjög svekktur að fá ekki neitt út úr þessum leik."
Ólafur sagði liðið vera með stjórn á seinni hálfleiknum allan tímann og að spyrnan hjá Oliver hafi einfaldlega verið mjög góð og gerði út um leikinn.
„Já algjörlega, við vorum með stjórn á öllum seinni hálfleiknum og gerðum allt rétt en svo fáum við á okkur mark í lokin. Mér sýnist þetta bara vera fínasta spyrna hjá Oliver."
Birnir Snær Ingason var borinn af velli með krampa þar sem fóturinn hans virtist læstur en Óli sagði að um slæman krampa hefði verið að ræða.
„Nei ég held þetta hafi bara verið krampi, verri krampi en Almarr fékk, þeir fengu báðir krampa og það er kannski eitthvað sem við verðum að skoða.">
Valmir Berisha var upphaflega lánaður til Fjölnis út Júlí en Ólafur segir að þeir séu að vinna í því að hafa hann út tímabilið. Auk þess talar hann um að bæta við sig einum til tveimur nýjum leikmönnum í glugganum.
„Það er í vinnslu og við reynum að halda Berisha út tímabilið. Við reynum svo að bæta við einum, jafnvel tveimur leikmönnum."
Athugasemdir