Juan Cuadrado kantmaður Juventus missti treyjunúmerið sitt, 7, við komu Cristiano Ronaldo til félagsins.
Cuadrado vissi ekki hvaða númer hann langaði í svo hann ákvað að henda í kosningu á Twitter.
Yfir 150 þúsund manns kusu um nýtt númer og vann treyjunúmerið 49 með afgerandi hætti.
Næstflestir vildu sjá hann í treyju númer 21, svo kom númer 10 og svo númer 16.
Ástæðan fyrir því að talan 49 er svona vinsæl er vegna þess að ættarnafnið Cuadrado þýðir ferningur, bæði á ítölsku (quadrato) og spænsku. Ferningsrótin af 49 er 7.
Athugasemdir