BBC hefur tekið saman lista yfir tíu leikmenn sem vöktu athygli á HM og gætu fengið stór félagaskipti á næstu vikum. Hér að neðan má sjá listann.
Aleksandr Golovin (Rússland) - Miðjumaður CSKA Moskvu vakti athygli hjá Rússunum. Einungis 22 ára gamall og hefur verið orðaður við Arsenal, Chelsea og Juventus.
Hakim Ziechy (Marokkó) - Orðrómur er um að Roma og Liverpool fylgist með Hakim en hann er í dag á mála hjá Ajax.
Benjamin Pavard (Frakkland) - Pavard sló gjörsamlega í gegn á HM og skoraði meðal annars mark mótsins gegn Argentínu. Fjölmörg félög hafa sýnt honum áhuga og líklegt er að hann fari frá Stuttgart á næstunni.
Andre Carrillo (Perú) - Skoraði gegn Ástralíu og átti góða leiki á HM. Carrillo var á láni hjá Watford á síðasta tímabili frá Benfica en Everton og Fulham hafa sýnt honum áhuga.
Ahmed Musa (Nígería) - Tvö mörk Musa gegn Íslandi vöktu athygli félaga. Gæti yfirgefið Leicester fyrir peningana hjá Al Nassr í Sádi-Arabíu.
Hirving Lozano (Mexíkó) - Skoraði sigurmarkið gegn Þjóðverjum og vakti mikla athygli. Gæti farið frá PSV Eindhoven í sumar en Manchester United, Tottenham, Real Madrid og Barcelona hafa öll sýnt áhuga.
Cho Hyun-woo (Suður-Kórea) - Lokaði markinu í sigri gegn Þjóðverjum. Var í kjölfarið, eins og margir aðrir markverðir, orðaður við Liverpool.
Harry Maguire (England) - Greip tækifærið og var eins og klettur í vörn Englendinga. Gæti farið frá Leicester fyrir félag í topp sex á Englandi.
Moussa Wague (Senegal) - Þessi ungi hægri bakvörður skoraði og vakti athygli með liði Senegal. Gæti farið frá Eupen í Belgíu til Napoli á Ítalíu.
Athugasemdir