Bakvörðurinn Ástbjörn Þórðarson hefur fært sig um set og er kominn í Víking Ólafsvík. Hann fer til Ólsara á lánssamningi frá KR.
Ástbjörn var upphaflega lánaður til ÍA í sumar en spilmínútur voru af skornum skammti og hann lék aðeins tvo leiki fyrir Skagamenn í Inkasso-deildinni.
Ástbjörn var upphaflega lánaður til ÍA í sumar en spilmínútur voru af skornum skammti og hann lék aðeins tvo leiki fyrir Skagamenn í Inkasso-deildinni.
Ástbjörn, sem er á elsta ári í 2. flokki, skoraði eitt mark í sex leikjum í Pepsi-deildinni með KR í fyrra.
Hann getur bæði leikið sem hægri og vinstri bakvörður og hann er nú farinn til Ólsara.
Hann hefur á ferli sínum bæði leikið með U17 og U19 ára landsliði Íslands.
Víkingur Ólafsvík er í harðri baráttu um að komast upp í Pepsi-deildina, liðið er með 23 stig eða jafnmörg stig og ÍA sem er í öðru sæti Inkasso-deildarinnar.
HK trónir á toppi deildarinnar nú þegar hún er hálfnuð en stöðuna má sjá hér að neðan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir