Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 19. júlí 2018 11:57
Ívan Guðjón Baldursson
Leicester að kaupa Danny Ward frá Liverpool
Mynd: Getty Images
Sky Sports segist hafa öruggar heimildir fyrir því að Danny Ward, 25 ára markvörður Liverpool, sé á leið til Leicester City.

Alisson Becker er á leiðinni til Liverpool og því þarf félagið að losa sig við markvörð. Sky segir að Leicester muni greiða 10 milljónir punda fyrir Ward.

Á tímapunkti var útlit fyrir að Alisson kæmi ekki til Liverpool og þá töluðu fjölmiðlar á Englandi um að Ward gæti haft betur gegn Loris Karius og Simon Mignolet í baráttunni um byrjunarliðssæti.

Ward gerði góða hluti á láni hjá Huddersfield tímabilið 2016-17 og hjálpaði liðinu að komast upp í ensku úrvalsdeildina. Hjá Leicester mun hann berjast við Kasper Schmeichel og Eldin Jakupovic um markmannsstöðuna.

Ward á tvo úrvalsdeildarleiki að baki fyrir Liverpool en þeir komu báðir tímabilið 2015-16. Hann á fjóra A-landsleiki að baki fyrir Wales.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner