Sæþór kom við sögu í sex leikjum KA á tímabilinu. Fjórir í Pepsi-deildinni og tveir í Mjólkurbikarnum.
KA staðfesti rétt í þessu félagaskipti Sæþórs Olgeirssonar til Völsungs. Hann verður á láni þar út sumarið.
Sæþór er tvítugur sóknarmaður KA sem sprakk út með Völsungi í 2. deildinni síðasta sumar.
Sæþór gerði 23 mörk í 21 leik en það nægði ekki til að koma Húsvíkingum upp um deild, þar sem þeir enduðu í sjöunda sæti, níu stigum frá því að komast upp um deild.
Þetta sumarið er Völsungur í toppbaráttu í 2. deild og yrði aðstoð frá Sæþóri afar kærkomin. Taplaust lið Aftureldingar vermir toppsætið og kemur Kári þar á eftir. Völsungur er í þriðja sæti, fjórum stigum frá toppnum.
KA og @Volsungur hafa komist að samkomulagi um að Sæþór Olgeirsson, @olgeirsson, verði lánaður til uppeldisfélags síns Völsungs út tímabilið. Við óskum Sæþóri góðs gengis og hlökkum til að fá hann aftur til liðs við okkur í KA að sumrinu loknu https://t.co/qCipTHWGUv pic.twitter.com/7ot4K3WwN4
— KA (@KAakureyri) July 19, 2018
Athugasemdir