Wolves heldur áfram að láta til sín taka á félagsskiptamarkaðnum og hafa nú fengið Paulo Alves til liðs við félagið frá Liverpool.
Alves er 20 ára gamall portúgali sem spilar gjarnan í stöðu sóknarsinnaðs miðjumanns. Hann kemur til Wolves frá Liverpool og mun að öllum líkindum spila fyrir U-23 ára lið Wolves á næsta tímabili.
Alves gekk til liðs við Liverpool sumarið 2015 frá Porto. Hann þekkir ágætlega til U-23 ára deildarinnar en hann spilaði einmitt fyrir Liverpool í þeirri deild á siðasta tímabili.
Alves kemur inn i hóp U-23 ára liðsins sem er þessa stundina í Hollandi að undirbúa sig fyrir leik gegn PEC Zwolle á miðvikudag.
Athugasemdir