Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 22. júlí 2018 15:59
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kári mun ekki spila fyrir Víking - Á leið til Tyrklands
Kári Árnason.
Kári Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur þarf að bíða lengur eftir Kára.
Víkingur þarf að bíða lengur eftir Kára.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Kári Árnason er ekki í leikmannahópi Víkings sem mætir Íslandsmeisturum Vals í Pepsi-deild karla í dag og fyrir því er ástæða.

Það var orðin gömul tugga að Kári væri ekki í hóp. Hann samdi við Víking fyrir HM og var komin með leikheimild strax eftir Heimsmeistaramótið.

Hann hefur hins vegar ekki verið neitt í hóp hjá Víkingi. Í kjölfarið af því að hann væri ekki í hóp í dag sendi Víkingur frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að Kári sé aftur á leið í atvinnumennsku.

Yfirlýsing frá Víkingi
Knattspyrnudeild Víkings hefur veitt tyrknesku félagi heimild til að semja við Kára Árnason leikmann Víkings. Víkingur og Kári höfðu komist að samkomulagi um að leikmaðurinn myndi leika með félaginu í Pepsi-deildinni í sumar en jafnframt var samkomulag milli aðila um að ef Kára byðist tækifæri í atvinnumennsku þá hefði hann heimild til að skoða það. Tækifærið sem nú býðst Kára kom óvænt upp á síðustu dögum og var endanlega gengið frá samkomulagi í morgun um að Kári færi til Tyrklands. Það hefur frá upphafi verið stefna bæði Kára og Víkings að hann myndi spila með félaginu í sumar og einungis smávægileg meiðsli sem hafa komið í veg fyrir að svo hafi getað orðið.

Það tækifæri sem Kára hefur nú boðist gefur honum tök á að framlengja atvinnumannaferil sinn um eitt ár áður en hann snýr til Íslands á ný. Samkomulag er milli Víkings og Kára um að þegar hann snýr til baka frá Tyrklandi næsta vor þá muni hann leika fyrir Víking eins og til hafði staðið að hann myndi gera í sumar.

Víkingur þakkar Kára þann hlýhug sem hann hefur sýnt félaginu á liðnm mánuðum og óskar honum velgengni í því verkefni sem hann tekur sér nú fyrir hendur.


Kári er orðinn 35 ára en á meðan HM stóð var hann orðaður við BB Erzurumspor í tyrknesku úrvalsdeildinni. Ekki er vitað fyrir vissu hvort það sé félagið sem Kári er á leið til.
Athugasemdir
banner
banner
banner