Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var að vonum sáttur eftir 1-0 sigur sinna manna gegn Stjörnunni í dag. Þetta var fyrsti leikur sumarsins þar sem að Stjörnunni tekst ekki að skora.
„Þetta var flottur sigur á mjög góðu liði sem að hefur skorað í öllum leikjum í deildinni. Við héldum markinu okkar hreinu sem að er vel gert gegn svona öflugu liði." sagði Rúnar eftir leik.
„Þetta var flottur sigur á mjög góðu liði sem að hefur skorað í öllum leikjum í deildinni. Við héldum markinu okkar hreinu sem að er vel gert gegn svona öflugu liði." sagði Rúnar eftir leik.
Lestu um leikinn: KR 1 - 0 Stjarnan
KR-ingar komust yfir í miðjum fyrri hálfleik með marki beint úr aukaspyrnu og vörðust vel eftir það.
„Stjörnumenn voru meira með boltann eftir markið okkar og við ætluðum að reyna að refsa þeim með skyndisóknum í síðari hálfleik og við fáum eitt dauðafæri til að komast í 2-0 en Halli ver vel. Við hefðum viljað skora annað mark."
Leikmannaglugginn er opinn á Íslandi og segir Rúnar að hann sé að skoða í kringum sig. Viktor Jónsson, framherji Þróttar, hefur verið orðaður við KR.
„Við erum að skoða innlenda markaðinn og hann er bara erfiður. Allir góðir leikmenn á Íslandi eru oft orðaðir við KR og Viktor er mjög góður og við verðum bara að sjá til hvort að hann komi einhverntímann í KR. Eins og staðan er í dag sé ég það ekki gerast." sagði Rúnar aðspurður um málið.
Nánar er rætt við Rúnar í spilaranum hér að ofan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir