Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 25. júlí 2018 14:15
Arnar Daði Arnarsson
Myndband: Nýr markvörður Þórs/KA sýnir frábær tilþrif með boltann
Bukovec er komin með leikheimild með Þór/KA.
Bukovec er komin með leikheimild með Þór/KA.
Mynd: Thorsport.is
Stephanie Bukovec markvörður Þórs/KA í Pepsi-deildinni er nú komin með leikheimild og getur því spilað með liðinu í næsta leik. Hún gekk í raðir Íslandsmeistarana fyrr í þessum mánuði.

Hún er fædd árið 1995 í Toronto í Ontario-fylki í Kanada, en á króatíska móður og hóf að leika með króatíska landsliðinu 2017.

Hún er meðal annars þekkt fyrir mikla boltafimi og var á meðal þeirra sem sýndu listir sínar í tengslum við HM sem fram fór í Kanada 2015.

Þór/KA er í 2. sæti deildarinnar með 19 stig, stigi á eftir Breiðablik sem er á toppi deildarinnar. Bukovec gæti spilað næsta leik með liðinu gegn ÍBV næstkomandi laugardag.

Hægt er að sjá Bukovec leika listir sínar með boltann í skemmtilegu myndskeiði hér að neðan.

Svo er bara stóra spurningin, hvort hún geri eitthvað af þessu á vellinum með Þór/KA í Pepsi-deildinni í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner