Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 10. ágúst 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Sjáum í nóvember hvaða lið eru líkleg
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, vildi lítið ræða titilmöguleika liðsins á fréttamannafundi í gær.

United hefur leik í ensku úrvaldseildinni gegn Leicester í kvöld klukkan 19:00.

Mourinho segir að fyrstu þrír mánuðir tímabilsins skeri úr um það hvaða lið koma til greina í titilbaráttunni.

„Í lok nóvember eða í desember þá þurfum við ekki orð, þú sérð þá hvaða lið koma til greina til að vinna ensku úrvalsdeildina," sagði Mourinho.

„Í augnablikinu eru orð ekki mikilvæg. Spilum fótbolta og sjáum til í lok nóvember eða desember. Þið sjáið þá hvaða lið koma til greina."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner