Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 10. ágúst 2018 20:06
Elvar Geir Magnússon
Hernandez til Real Sociedad (Staðfest) - Silva á leið til Sevilla
Hernandez var á láni hjá Alaves tímabilið 2016-17.
Hernandez var á láni hjá Alaves tímabilið 2016-17.
Mynd: Getty Images
Fréttir af félagaskiptum á Spáni.

Real Sociedad hefur fengið spænska hægri bakvörðinn Theo Hernandez lánaðan frá Real Madrid út tímabilið. Hernandez er tvítugur og hefur verið á bekknum hjá Madrídarliðinu vegna erfiðrar samkeppni við Marcelo.

Hjá Real Madrid hafa menn þó mikla trú á að Hernandez verði framtíðarmaður hjá liðinu og arftaki Marcelo.

Þá segja spænskir fjölmiðlar að Sevilla sé að kaupa portúgalska sóknarmanninn Andre Silva frá AC Milan. Silva skoraði aðeins tvö mörk á sínu fyrsta tímabili á ítalíu.
Athugasemdir
banner
banner