Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 11. ágúst 2018 08:15
Gunnar Logi Gylfason
Joao Mario gæti endað hjá Real Betis
Joao Mario spilaði með West Ham seinni hluta síðasta tímabils
Joao Mario spilaði með West Ham seinni hluta síðasta tímabils
Mynd: West Ham
Joao Mario, leikmaður Inter Milan, gæti endað hjá spænska liðinu Real Betis.

Portúgalinn var á láni hjá West Ham seinni hluta síðasta tímabils og vildi hann halda áfram í ensku úrvalsdeildinni en nú hefur enski glugginn lokað.

Krafta hans er ekki óskað hjá ítalska stórliðinu og er hann því orðaður við lánsdvöl til Real Betis sem gæti svo keypt hann í lok tímabilsins.

Joao Mario kom til Inter frá Sporting á 40 milljónir evra sumarið 2016.
Athugasemdir
banner
banner