Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 12. ágúst 2018 07:30
Elvar Geir Magnússon
Andre Silva til Sevilla (Staðfest)
Andre Silva er 22 ára.
Andre Silva er 22 ára.
Mynd: Getty Images
Portúgalski sóknarmaðurinn Andre Silva hefur verið kynntur sem nýr leikmaður spænska liðsins Sevilla.

Hann kemur á lánssamningi frá AC Milan en klásúla er um möguleg kaup eftir tímabilið.

AC Milan keyti Silva frá Porto fyrir einu ári síðan á háar fjárhæðir en hann skoraði aðeins tvö mörk í ítölsku A-deildinni á síðasta tímabili.

Honum gekk öllu betur hjá Porto þar sem hann hafði skorað 24 mörk í 58 leikjum auk þess sem hann er með 12 landsliðsmörk í 26 leikjum fyrir Portúgal. Hann spilaði með portúgalska liðinu á HM í Rússlandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner