Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 11. ágúst 2018 20:11
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Frakkland: Rúnar og félagar hans í Dijon byrja á sigri
Rúnar Alex Rúnarsson leikur með Dijon í Frakklandi.
Rúnar Alex Rúnarsson leikur með Dijon í Frakklandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Montpellier 1-2 Dijon
1-0 Pedro Mendes ('5)
1-1 Julio Tavares ('51)
1-2 Senou Coulibaly ('90)

Markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson var í byrjunarliði Dijon í kvöld þegar þeir heimsóttu Montpellier í fyrstu umferð frönsku úrvalsdeildarinnar.

Heimamenn komust yfir strax á 5. mínútu og staðan orðin 1-0 fyrir Montpellier og þannig var staðan þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Julio Tavares jafnaði fyrir Dijon í upphafi seinni hálfleiks, staðan orðin 1-1 og þannig var staðan þar til á 90. mínútu þegar Senou Coulibaly skoraði sigurmark Dijon.

Niðurstaðan er því sú að Rúnar Alex og félagar hans í Dijon byrja tímabilið á sigri.
Athugasemdir
banner
banner
banner