Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 11. ágúst 2018 20:49
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Tyrkland: Theódór Elmar lék allan leikinn í jafntefli
Theódór Elmar leikur með Elazigspor í Tyrklandi.
Theódór Elmar leikur með Elazigspor í Tyrklandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adanaspor 1-1 Elazigspor
0-1 Mehmet Yigit ('65)
1-1 Renan Diniz ('77)

Adanaspor og Elazigspor mættust í næst efstu deild í Tyrklandi í kvöld.

Með Elazigspor leikur Theódór Elmar Bjarnason en hann var í byrjunarliði í kvöld og lék allan leikinn.

Lokaniðurstaðan var 1-1 jafntefli þar sem gestirnir komust yfir á 65. mínútu með marki frá Mehmet Yigit. Renan Diniz jafnaði metin fyrir heimamenn tólf mínútum síðar.

Theódór Elmar Bjarnason og félagar hans í Elazigspor byrja tímabilið á jafntefli en fyrsta umferð deildarinnar fer fram um helgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner