Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 12. ágúst 2018 08:15
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Miðjumaður West Ham á leiðinni á láni til Fiorentina
Edmilson Fernandes.
Edmilson Fernandes.
Mynd: Getty Images
Svisslendingurinn Edmilson Fernandes, miðjumaður West Ham mun að öllum líkindum spila á Ítalíu í vetur.

Samkvæmt heimildum Sky Sports fór Fernandes til Ítalíu í gær þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun í dag.

Félagið sem Edmilson Fernandes er sagður á leið til er Fiorentina en talið er að West Ham muni lána hann út þetta tímabil og Fiorentina mun þá hafa forkaupsrétt á honum næsta sumar.

Fernandes hefur verið hjá West Ham frá árinu 2016 en hann kom þangað frá Sion í heimalandinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner