Wolves lék sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni í gær síðan árið 2012 þegar Everton kom í heimsókn en liðin skildu jöfn, 2-2.
Ruben Neves leikmaður Wolves var á skotskónum í leiknum og hann var ánægður með spilamennsku liðsins.
„Everton skoraði fyrsta markið eftir aukaspyrnu en mér fannst við hafa góða stjórn á leiknum og svo náðum við að setja jöfnunarmark fyrir seinni hálfleikinn.
„Í seinni hálfleik héldum við áfram að stjórna leiknum en náðum ekki í úrslitin sem við vildum," sagði Neves.
Ég er mjög ánægður með það að geta hjálpað liðinu við það að ná í stig en það sem við viljum gera er að vinna leiki, sérstaklega á heimavelli," sagði Neves þegar hann var spurður út í markið sem hann skoraði.
Athugasemdir