Englandsmeistarar Manchester City hefja titilvörnina á erfiðum heimavelli Arsenal, Emirates leikvanginum.
Leikurinn hefst klukkan 15:00 og hafa byrjunarlið beggja liða verið staðfest og koma þau bæði nokkuð á óvart.
Pierre-Emerick Aubameyang byrjar fremstur í liði heimamanna og heldur hann Alexandre Lacazette á bekknum.
Mesut Özil og Henrikh Mkhitaryan eru úti á köntunum á meðan Frakkinn ungi Matteo Guendouzi byrjar á miðjunni.
Ainsley Maitland-Niles er í vinstri bakverði og Sokratis Papastathopoulos byrjar ásamt Shkodran Mustafi í hjarta varnarinnar.
Sergio Agüero er þá fremstur í liði Man City með Raheem Sterling og Riyad Mahrez á köntunum.
Bernardo Silva og Ilkay Gundogan byrja þá á miðjunni í fjarveru David Silva sem er meiddur. Kevin De Bruyne er þreyttur eftir sumarið og byrjar á bekknum.
Vincent Kompany og Nicolas Otamendi byrja einnig á bekknum og koma John Stones og Aymeric Laporte inn í byrjunarliðið í þeirra stað.
Arsenal: Cech; Bellerin, Mustafi, Sokratis, Maitland-Niles; Guendouzi, Xhaka, Ramsey; Özil, Mkhitaryan; Aubameyang
Manchester City: Ederson, Walker, Stones, Laporte, Mendy, Fernandinho, Gundogan, Bernardo, Mahrez, Sterling, Aguero
Athugasemdir