Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 12. ágúst 2018 18:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Derby Carrillo farinn frá ÍBV (Staðfest)
Derby kom til ÍBV 2016.
Derby kom til ÍBV 2016.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Derby Carrillo hefur yfirgefið herbúðir ÍBV. Þetta staðfesti Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, eftir sigur gegn FH í Pepsi-deildinni í dag.

Derby ætlar að reyna að koma sér að hjá liði í Bandaríkjunum en félagaskiptaglugginn þar í landi er enn opinn.

Derby kom fyrst til ÍBV árið 2016 en hann er frá El Salvador.

Hann spilaði með ÍBV 2016, 2017 og í sumar, en hann hefur aðeins komið við sögu í sex leikjum í sumar og ekki þótt sannfærandi í sínum aðgerðum.

Halldór Páll Geirsson mun sjá um að verja mark ÍBV það sem eftir er af sumrinu.

Viðtalið við Kristján Guðmundsson kemur inn á síðuna von bráðar.
Athugasemdir
banner
banner