Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 12. ágúst 2018 18:28
Arnar Daði Arnarsson
Óli Kristjáns: Þetta var þvæla
Ólafur Helgi Kristjánsson þjálfari FH.
Ólafur Helgi Kristjánsson þjálfari FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Helgi Kristjánsson þjálfari FH var að vonum svekktur og gott betur en það eftir 2-0 tap sinna manna á heimavelli gegn ÍBV í 16. umferð Pepsi-deildar karla í dag.

Hann var einnig óánægður með vítaspyrnudóminn sem ÍBV fékk þegar þeir skoruðu annað markið í leiknum.

Lestu um leikinn: FH 0 -  2 ÍBV

„Við lögðum áherslur á þrjá hluti í þessum leik. Við ætluðum að vera yfir í baráttunni, þ.e.a.s við ætluðum að vinna návígin okkar, við ætluðum að hafa meiri ákefð en við höfum á haft í síðustu leikjum og síðan ætluðum við að loka fyrir föstu leikatriðin. Það tókst bærilega. Síðan voru aðrir þættir sem voru ekki að ganga."

„Þeir fara í gegnum okkur þegar þeir skora fyrsta markið og seinna markið kemur úr vítaspyrnu sem ég hef ekki séð aftur, en mín upplifun í leiknum var að þetta var þvæla miðað við það sem maður hefur séð í deildinni í sumar. Hendi víti. Gjörsamlega óskiljanlegt að finna út hvenær skal dæma slíkt," sagði Ólafur Helgi sem segir mikla vinnu vera framundan.

„Þetta eru vonbrigði og leikmennirnir þurfa stuðning frá okkur sem stöndum að þessu og mér sem ber ábyrgð á þessu. Við þurfum að vinna okkur út úr þessu saman."

Hann var sammála um að þessi leikur sé svolítið saga FH í sumar. Tap á heimavelli gegn liði í botnbaráttunni og á pappírunum á FH að vera töluvert betra lið en ÍBV.

„Við erum ekki að ná að kreista út úrslit í þeim leikjum sem eru töff eins og þessi. Við náum ekki að sækja okkur yfirburði. Við byrjuðum þennan leik prýðilega en náum ekki að setja mark eða stinga á andstæðingnum sem fær þá til að horfa meira niður í grasið en upp. Það er okkar saga," sagði Ólafur Helgi Kristjánsson þjálfari FH.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner