Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   sun 12. ágúst 2018 21:20
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Túfa: Það er erfitt að vinna svona leiki
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Túfa, þjálfari KA, var sáttur með sigurinn gegn botnliði Keflavíkur í Pepsi-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 0 -  3 KA

Lokatölur voru 3-0, Elfar Árni Aðalsteinsson skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum og Ásgeir Sigurgeirsson var líka á skotskónum.

„Ég er mjög ánægður að vinna þennan leik," sagði Túfa.

„Það er erfitt að vinna svona leiki þar sem allir skrifa um að við eigum að vinna - Keflavík er með flotta unga stráka sem gefa ekkert eftir, en við skorum mark á réttum tíma og mér fannst aldrei hætta að við myndum fá á okkur mark."

Seinni vítaspyrnudómurinn sem féll með KA þótti umdeildur.

„Mér fannst þetta pjúra brot, ég get ekki séð hvort þetta var fyrir innan teig eða utan hans. Ég treysti Pétri fullkomlega, hann er búinn að vera einn besti dómari sumarsins."

„Ég horfði á síðustu þrjá leiki Keflavíkur og við undirbjuggum okkur mjög vel. Það eina sem kom mér á óvart var að Ísak Óli var fremstur á miðjunni, ég hélt að hann myndi spila sem hafsent."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner