banner
   sun 12. ágúst 2018 23:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tvö pungskot á tveimur sekúndum - Lýsing Hödda Magg athyglisverð
Mynd: Getty Images
Liverpool sigraði West Ham örugglega í fyrsta leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Liverpool fór með 4-0 sigur af hólmi.

Sadio Mane skoraði tvö mörk en Mohamed Salah og Daniel Sturridge voru líka á skotskónum.

Um miðjan seinni hálfleikinn lentu tveir leikmenn West Ham, Jack Wilshere og Mark Noble í því að fá skot í punginn. Hver sá sem hefur lent í því veit að það er ekki góð tilfinning.

Íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon var lýsa leiknum á Stöð 2 Sport og hann ákvað að bjóða upp á létt grín þegar Wilshere og Noble lágu eftir sárþjáðir.

Hörður talaði þá með háum tón en til að hlusta á það smelltu þá hér.

Smelltu hér til að sjá það þegar Wilshere og Noble meiddust.
Athugasemdir
banner
banner