Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 14. ágúst 2018 15:00
Magnús Már Einarsson
Myndband: Sigurmark Birkis gegn Wigan
Mynd: Getty Images
Íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason tryggði Aston Villa sigur á Wigan í ensku Championship deildinni um helgina.

Birkir var mættur á fjærstöngina til að koma fyrirgjöf í netið á lokamínútunum.

Aston Villa hefur nú birt skemmtilegt myndband af markinu á YouTube.

Um er að ræða 360 gráðu myndavél og því er hægt að færa músina á skjánum og sjá mismunandi sjónarhorn af markinu.

Sjón er sögu ríkari en markið er hér neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner