Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. ágúst 2018 17:00
Magnús Már Einarsson
Denis Cheryshev til Valencia á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Valencia hefur fengið rússneska kantmanninn Denis Cheryshev á láni frá Villarreal. Lánssamningurinn gildir út tímabilið.

Hinn 27 ára gamli Cheryshev var hjá Real Madrid frá 2012 til 2016 en lék einungis tvo leiki í aðalliðinu.

Hann þekkir til hjá Valencia eftir að hafa verið nokkra mánuði á láni hjá félaginu árið 2016.

Undanfarin tvö tímabil hefur Cheryshev síðan spilað með Villarreal.

Í sumar skoraði Cheryshev bæði gegn Egyptalandi og Króatíu þegar Rússar fóru í 8-liða úrslit á HM.
Athugasemdir
banner
banner