Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 14. ágúst 2018 17:15
Elvar Geir Magnússon
Spalletti framlengir við Inter
Luciano Spalletti.
Luciano Spalletti.
Mynd: Getty Images
Inter hefur formlega tilkynnt að Luciano Spalletti þjálfari hefur skrifað undir nýjan samning til 2021.

Þessi fyrrum stjóri Roma skrifaði undir tveggja ára samning síðasta sumar.

„Ég vil þakka Zhang fjölskyldunni og félaginu fyrir að gefa mér tækifæri til að framlengja," segir Spalletti.

Steven Zhang, sonur eigandans Jindong Zhang, fer fögrum orðum um Spalletti.

„Herra Spalletti og hans starfslið bættu liðið á síðasta tímabili og komu því í Meistaradeild Evrópu. Það er ánægjuefni að framlengja við Herra Spalletti og reyna áfram að gera Inter að einu fremsta liði heimsfótboltans. Við höfum mikla trú á honum," segir Steven Zhang.

Inter hafnaði í fjórða sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner