Steven N'Zonzi er orðinn leikmaður Roma eftir að hafa skrifað undir samning við félagið í dag.
N'Zonzi kemur til liðsins frá Sevilla og skrifar undir fjögurra ára samning eftir að hafa gengist undir læknisskoðun fyrr í dag.
N'Zonzi hafði gefið í skyn að hann vildi yfirgefa Sevilla og hann hefur nú fengið ósk sína uppfyllta. Kaupverðið er talið vera í kringum 30 milljónir punda.
Twitter síða Roma ákvað að nýta tækfærið og skjóta létt á Barcelona á Twitter eftir að hafa tryggt sér leikmanninn. Barcelona var sagt áhugassamt en það andar köldu á milli liðanna eftir að spænska félagið stal leikmanninum Malcom rétt áður en hann skrifaði undir samning við Roma.
It's official: World Cup winner Steven Nzonzi is an #ASRoma player! 💪 #DajeSteven pic.twitter.com/NGaS6uIv1Z
— AS Roma English (@ASRomaEN) August 14, 2018
Athugasemdir