„Ég er ánægður með þrjú stig,“ sagði Lárus Orri Sigurðsson þjálfari Þórs eftir að lið hans vann 5-2 sigur á ÍR í Inkasso deild karla nú í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór 5 - 2 ÍR
„Við vissum að þetta yrði erfiður leikur. ÍR-ingar eru góðir, áttu góðan leik síðast. Unnu flottan sigur á Leikni síðast þannig að við vissum að þetta yrði erfiður leikur. Ég var ánægður með fyrri hálfleikinn, ánægður með okkur alveg í stöðuna 4-0 en þá svona hleyptum við þeim óþarfa mikið inn í leikinn.“
„Þetta eru bara flott þrjú stig á móti ÍR og nú erum við komnir með sex stig á móti ÍR í ár, við fengum bara eitt á móti þeim í fyrra.“
Víkingur Ólafsvík gerði jafntefli í gær og töpuðu því tveimur stigum þar. Þórsarar styrktu því stöðu sína í toppbaráttunni með þessum sigri.
„Já já við gerðum það. Við erum samt bara að reyna að horfa á það sem við erum að gera. Maður er alveg brjálaður ef maður er að reyna að horfa á allt annað í kringum sig. Þannig að við erum að reyna að fókusa bara á stigasöfnunina hjá okkur.“
Viðtalið við Lárus Orra má lesa í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir