Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 14. ágúst 2018 23:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
4. deild: Jafntefli í eina leik dagsins
Stál-úlfi mistókst að komast uppfyrir Björninn í kvöld.
Stál-úlfi mistókst að komast uppfyrir Björninn í kvöld.
Mynd: Aðsend
Einn leikur var á dagskrá í 4. deild karla í kvöld en þar mættust Stál-úlfur og Björninn í A-riðli.

Stál-Úlfur komst yfir undir lok fyrri hálfleiks og fór inn í leikhlé með forystu. Strákarnir í Birninum komu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og jöfnuðu metin á 64. mínútu.

Á 71. mínútu komst Stál-úlfur aftur yfir og það stefndi allt í sigur liðsins. Birninum tókst hinsvegar að jafna á dramatískan hátt á 93. mínútu og 2-2 jafntefli því niðurstaðan.

Liðin eru í 5. og 6. sæti riðilsins eftir leik dagsins en Björninn hefur náð í einu stigi meira en Stál-úlfur.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner