banner
   mið 15. ágúst 2018 13:39
Elvar Geir Magnússon
Davíð Þór: Nú reynir á þetta félag
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH.
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan tekur á móti FH í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld klukkan 19:15.

FH-ingar hafa birt flott myndband á Facebook vegg sínum sem tekið var upp á æfingu þeirra í Kaplakrikanum í gær.

Þar tala Ólafur Kristjánsson þjálfari, Davíð Þór Viðarsson fyrirliði og markahrókurinn reyndi Atli Viðar Björnsson.

„Við 'feisum' úrslitin, þau hafa ekki verið góð. En við vitum að með réttri og góðri vinnu þá verða þau betri," segir Ólafur.

Hann, eins og leikmenn FH, gera sér alveg grein fyrir því að árangurinn á tímabilinu hefur verið slakur en liðið er í fimmta sæti, ellefu stigum frá efsta sætinu.

„Nú reynir á þetta félag. Þetta er klúbbur sem hefur alltaf sýnt samstöðu og í gegnum alla þessa velgengni hefur stuðningurinn verið gríðarlegur. Bæði í fyrra og í ár er ákveðinn mótbyr og það reynir á alla hjá félaginu," segir Davíð.

„Við höfum ekki spilað nægilega vel en erum staðráðnir í því að breyta því. Við þurfum á því að halda að FH-ingar fjölmenni og láti vel í sér heyra. Við ætlum okkur í þennan úrslitaleik."

Myndbandið má sjá hér að neðan en með því að smella hérna má sjá líkleg byrjunarlið.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner