Leonardo Bonucci og Cristiano Ronaldo voru báðir meðal markaskorara þegar aðallið Juventus vann 8-0 sigur gegn U23 liði sínu í æfingaleik.
Leikurinn fór fram á æfingasvæði Juventus í Tórínó en Ronaldo skoraði fyrsta mark leiksins.
Joao Cancelo, Paulo Dybala og Miralem Pjanic voru einnig meðal markaskorara.
Massimiliano Allegri þjálfari skipti nánast öllu liðinu út í hálfleik og Federico Bernardeschi, Mario Mandzukic og Blaise Matuidi skoruðu í seinni hálfleik.

Juventus býr sig undir að mæta Chievo í setningarleik ítölsku A-deildarinnar um komandi helgi.
Mattia De Sciglio og Leonardo Spinazzola eru báðir að jafna sig eftir meiðsli og voru ekki með í þessum æfingaleik.
Athugasemdir