Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 15. ágúst 2018 16:53
Elvar Geir Magnússon
Ospina til Napoli (Staðfest)
Ospina til Ítalíu.
Ospina til Ítalíu.
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn David Ospina hefur gengið í raðir Napoli frá Arsenal á lánssamningi. Ítalska félagið hefur möguleika á að kaupa Ospina eftir tímabilið.

Ospina hefur fallið niður goggunarröðina hjá Arsenal eftir að Bernd Leno var keyptur frá Bayer Leverkusen á 19,2 milljónir fyrr í sumar. Petr Cech er enn markvörður númer eitt.

Napoli hefur verið í markmannsleit síðan Alex Meret, sem lék með SPAL á síðasta tímabili, handarbrotnaði á æfingu í síðasta mánuði. Napoli var orðað við Simon Mignolet.

En nú er ljóst að hinn 29 ára Kólumbíumaður, Ospina, mun fara til Napoli.

Ospina hefur verið hjá Arsenal síðan hann kom frá Nice 2014. Það ár vakti hann athygli fyrir frammistöðu sína á HM. Arsene Wenger notaði hann mest í bikarleikjum.
Athugasemdir
banner
banner
banner