Stjarnan sigraði FH 2-0 í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á Samsung-vellinum í kvöld og eru komnir í úrslitaleikinn. Eyjólfur Héðinsson leikmaður Stjörnunnar var að vonum mjög ánægður en sagði liðið samt gera sér grein fyrir að þeir eru ekki búnir að vinna neinn titil enn.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 0 FH
„Þetta er bara stórkostleg tilfinning en við erum samt rólegir, við erum ekki búnir að vinna neitt ennþá og það er frábært að vera komnir í úrslitaleikinn en við erum ekki hættir. Við erum bara rétt að byrja og förum í úrslitaleikinn til að vinna."
Eyjólfur sagði að þeir hefðu náð að halda FH í skefjum í dag og þegar þeir halda hreinu þá vinna þeir yfirleitt leiki því þeir skora alltaf.
„Þetta var stál í stál, munurinn á liðinum í dag var að við náðum að kreista út tvö mörk og þeir sköpuðu eiginlega ekki neitt. Það er gírinn á okkur undanfarið, við höldum hreinu og þá þurfum við bara eitt mark til að vinna leikinn. Við erum búnir að halda hreinu í fjórum af síðustu fimm leikjum og höfum bara fengið á okkur eitt mark í þessum fimm leikjum."
Stjarnan er í harðri titilbaráttu í Pepsí-deildinni og komnir í úrslitaleik Mjólkurbikarsins núna, Eyjólfur segir að það sé kominn tími á titil í Garðabænum.
„Það yrði frábært, það er langt síðan Stjarnan vann titil, komin fjögur ár síðan. Félagið í heild sinni hefur bara gott af að skapa góðar minningar og það er vonandi komið að því í ár."
Athugasemdir